laugardagur, apríl 30, 2005

Með krús í hendi ég sat eitt sinn, þá settist lóa við gluggann minn

Þetta vísuupphaf á aldeilis vel við mig í dag þar sem ég sit með þessa hrikalega sætu kaffikrús við gluggann og heyrði einmitt í lóunni áðan. Krúsin góða er gjöf frá frábærum samstarfskonum mínum á Hofi og um leið og kaffið yljar kroppnum yljar hugsunin um þær sálinni.
Ææ, hvað það er skrýtið að vera hættur á Hofi! Ég fór loksins í vikunni og kvaddi fólkið mitt þar formlega. Átti yndislega stund með börnunum og var leyst út með svo fínum gjöfum að ég var hálf miður mín.
Í dag er þar opið hús og ég læt mig auðvitað ekki vanta.

Seinni partinn á svo að storma í dekur í Bláa lóninu með nýju samstarfsfólki - Ummm...

Og ritgerðin fékk lokayfirhalningu í gærkvöldi yfir rauðvíni og ostum. Já, maður kann nú að gera sér tilefnin til að hafa það kósí :) Annars hefur þetta samstarf okkar skólasystra verið svo ánægjulegt í þessum tveimur verkefnum að við verðum sennilega að halda áfram að hittast öðruhverju.

En nú yfir og út í sól og sumarblíðu.

sunnudagur, apríl 24, 2005

Hundrað íslensk topp módel brostu framan í ljósmyndarann í Elliðaárdalnum í dag. Já, þær mega sannarlega fara að passa sig þessar amerísku leggjalengjur sem spígspora á skjánum vikulega því þær hafa sko ekkert í íslenskar alvöru valkyrjur.

laugardagur, apríl 23, 2005

Asskoti góð afköst í dag

Enda búin að sitja við frá því snemma í morgun. Og nú er allt í einu eitthvað að smella saman í þessari ritgerðarvinnu, sem er svo sem ekki seinna vænna.

Svo hef ég ákveðið að létta mér lífið í sumar. Hætta við að taka svona mikið nám eins og ég hafði fyrirhugað heldur setja orkuna í að sinna þessu tímabundna starfi mínu af fullum hug og taka sennilega bara einn lítinn 2,5 eininga kúrs í skólanum. Svo sér maður bara til hvað haustið hefur að færa manni. Koma tímar, koma ráð.

Já, það verður voða gott þegar þessi skólaönn er frá og við blasir bara sumar og söngur. Ég hef bara hreinlega ekki mátt vera að því að hlakka til tónleikanna þann 5. maí en nú hellist þetta yfir mann. Mikið rosalega sem ég held að þetta verði skemmtilegt. Verð reyndar að fara að koma mér í að læra þessa texta sem enn eru ekki á hreinu - en þeir eru nú bara örfáir svo það hlýtur að smella. Nú svo tilheyrir bara að vera ekki með allt alveg á hreinu og feika bara með stæl. Uss, ekki segja Jóhönnu.

fimmtudagur, apríl 21, 2005

Nú er sumar, gleðjist gumar...

Gleðilegt sumar, kæru vinir og vandamenn.
Mikið er dásamlegt að hugsa um betri tíð með blóm í haga.

laugardagur, apríl 16, 2005

1. vers að baki

Jæja, best að blogga svolítið á meðan pizzurnar kúra í ofninum og ilmurinn kítlar nefið.

Nú er fyrstu vikunni lokið á nýjum vinnustað og ég er sátt við hvernig hefur gengið. Ég finn marga góða strauma þarna á Kjalarnesinu og nú er mitt hlutverk að nýta þá og styrkja þangað til nýr stjórnandi tekur við. Það er ótrúlega góður skóli að vera hent svona inn í starfið og verða að greina og setja sig inn í mál á örskotsstundu. Hildur Skarp. hefur auðvitað haft mig ansi mikið á herðunum þessa vikuna og veitt mér mikinn stuðning. Sama má segja um þau Borgar og Elínu Ásgríms og reyndar alla sem ég hef leitað til þessa dagana.
Ofboðslega sem ég er ánægð með að Hildur, skyldi hljóta þessa stöðu yfir Leikskóladeild Menntasviðs hjá Borginni. Hún er sannarlega vel að stöðunni komin enda finnur maður almenna gleði á meðal leikskólakennara með þessa niðurstöðu.

Í dag hef ég setið yfir stofnanakenningunum við að finna fræðilegan grunn til að byggja síðustu ritgerð þessarar annar á og lét meira að segja Léttsveitina í Kolaportinu algerlega framhjá mér fara. Öðruvísi mér áður brá!
Við ritgerðarstöllur, ég, Fanný og Anna Margrét, hittumst á fimmtudagskvöld og erum sammála um að þetta blessaða verkefni verði unnið svolítið á annarri mjöðminni eins og Fanný orðaði það svo skemmtilega. Erum sammála um að klóra í þetta eins og orka og tími leyfa en setja ekki markið á neinar níur að þessu sinni, heldur hafa í huga ráðleggingarnar sem Fríða Jóns gaf mér þegar ég var í íslenskunni. Þá sagði hún: Ingibjörg mín, mundu bara að allar einkunnir yfir 7,5 eru tímaeyðsla. Nú er komið að því að hafa þessar góðu ráðleggingar í huga :)

Pizzan bökuð.
Yfir og út.

miðvikudagur, apríl 13, 2005

Dagamunur

Ég var hreinlega eins og undin tuska eftir langan vinnudag í gær. Mætti eftir 11 tíma úthald á kóræfingu og var algerlega fyrirmunað að halda lagi.

Í dag hins vegar kom ég heim full orku og alsæl með daginn, enda margir hlutir sem náðist að vinna og áætlunin sem ég lagði upp með á mánudag um að setja mig inn í hluti virðist ætla að ganga upp.

mánudagur, apríl 11, 2005

Það er ljóst hver lærði mest í leikskólanum í dag. Það var leikskólastjórinn :)

sunnudagur, apríl 10, 2005

Á morgun fer ég til að vinna á Bergi. Hvers á Bergur að gjalda?

Í gær var opið hús hjá leikskólum hér í Grafarvoginum og ég brá mér á tvo staði. Fór fyrst í Fífuborgina mína gömlu og heimsótti mitt gamla fólk. Alltaf gaman að koma í Fífuborg og ljóst að þær láta ekki deigan síga þar. Mikill metnaður og flott vinna í gangi eins og endranær. Síðan fór ég í Bakka sem mig hefur alltaf langað til að skoða og var mjög hrifin. Húsið er rosalega hlýlegt og skemmtilegt og stendur náttúrulega á frábærum stað, nánast í fjöruborðinu.

Eftir heimsóknirnar tók svo við fyrsta vers við að pakka niður og fara yfir dót á Austurbrúninni. Það var auðvitað slegist um íbúðina og það fór eins og þeir höfðu spáð fasteignasalarnir að það tók viku að selja hana. Framundan eru því æði mörg handtökin við að fara í gegnum allt heila klabbið sem hefur safnast saman á rúmum 50 árum.

En nú er eins gott að hætta þessu pári og koma sér að verki. Ekki þýðir að sópa náminu bara undir mottu þó önnur verkefni séu ærin - svo UPP MEÐ SKRUDDURNAR, GAMLA MÍN!

föstudagur, apríl 08, 2005

Kæru vinir.
Fyrirgefið mér að setja inn svona tilkynningu, eins og hér að neðan, án frekari útskýringa. Nú skal ég bæta úr því.

Ég fékk sem sagt hringingu frá Leikskólum Reykjavíkur eftir hádegi s.l. miðvikudag og var beðin um að stökkva tímabundið inn í leikskólastjórastöðu í leikskóla sem skyndilega og fyrirvaralaust stendur uppi leikskólastjóralaus. Ég hugsaði mig um til kvölds og ákvað síðan að taka boltann. Satt að segja fyllist maður ákveðinni auðmýkt við að fá svona bón og getur bara hreinlega ekki sagt nei.
Ég fór síðan í gær og átti minn síðasta dag, í bili að minnsta kosti, á þessum dásamlega vinnustað, Hofi. Það var hrikalega skrýtinn dagur, mikill tregi í manni og í fyrsta sinn á mínum langa starfsferli grétum við saman ég og börnin. Ég ætlaði auðvitað alltaf að fara í launalaust námsleyfi frá og með 1. maí en þetta demdist einhvern veginn svo yfir okkur að allir urðu svolítið meyrir og viðkvæmir. En ég veit að ég gæti ekki skilið við þessa gullmola mína í betri höndum svo við verðum öll fljót að jafna okkur.

Í dag var ég svo í skólanum til hádegis en fór svo á hinn nýja vinnustað, leikskólann Berg á Kjalarnesi, til að hitta starfsfólk og skoða skólann. Ég fékk afskaplega góðar móttökur svo ég mæti gallvösk og bjartsýn til hins nýja starfs á mánudagsmorgun.

Auðvitað raskar þetta trúlega öllum plönum um mikið og stíft nám í sumar því þó staðan verði trúlega auglýst núna um helgina, gæti það dregist eitthvað fram á sumarið að nýr skólastjóri taki til starfa. Sennilega mun þó þessi reynsla verða á við margra eininga nám í Kennó svo ég syrgi það svo sem ekkert. Geri samt engin langtímaplön núna heldur tek bara einn dag í einu eins og alkarnir :)

miðvikudagur, apríl 06, 2005

Ja, hérna þvílíkur dagur!

Já, skrýtið hvað maður er grunlaus um það þegar maður opnar augun á morgnanna hvað hver dagur á eftir að bera í skauti sér. Ég mun sennilega minnast 6. apríl 2005 lengi og þá ekki fyrir það að hafa fengið gleraugun margumtöluðu - þó að þau komi bara skolli vel út.

mánudagur, apríl 04, 2005

Legg ekki meira á ykkur...

... en það lítur bara út fyrir að konan fái Gúkkí á morgun eða hinn.
Ég meina hvað munar mann um að bíða í sex vikur eftir Gúkkí !

sunnudagur, apríl 03, 2005

ÓTRÚLEGT

Já, hreint út sagt ótrúlegt hvað skemmtanir Léttsveitarinnar eru skemmtilegar. Ég meina, stundum fer maður á skemmtanir sem eru hreint ekkert svo sérstaklega skemmtilegar.
Ég held samt að árshátíðin í gær hafi slegið öll fyrri met. Hrein dásemd! Og nú eru þeir að jafna sig þessir litlu vöðvar við kjálkabeinin sem hafa það hlutverk að draga munnvikin út undir eyru. Þvílíkt og annað eins álag á litla vöðva. Svona uppákoma slær örugglega við allri einkaþjálfun og engin furða að maður skyldi missa linsurnar ofan í sósuna !

En upp úr öllu stendur þó hvað ég er ánægð með að Eygló skyldi eiga vinningstextann - og ekki bara textann heldur líka lagið. Ég er viss um að margir góðir textar hafa verið sendir inn sem eiga eftir að gleðja okkur Létturnar á góðum stundum - því hópurinn sem þarna átti innlegg lofar sannarlega góðu. En ef ég hafði einhverjar vonir varðandi þessa textasamkeppni (sem ég vil helst ekki kalla þjóðsöng) þá var það að við fengjum notið texta frá Eygló. Í mínum huga eykur það einhverra hluta vegna gildi söngsins - hún hefur gefið okkur svo margar perlur að þetta var einhvern veginn það eina rétta.

laugardagur, apríl 02, 2005

Er ég seinheppin eða...

Í haust keypti ég mér nýja fartölvu. Eftir að hafa farið með hana fjórum sinnum í viðgerð var hún loksins talin gölluð og ég fékk nýja. Sú nýja virðist vera eitthvað ´dyntótt´ því hún tekur stundum upp á því að kveikja ekki á sér. ???????

Fyrir fimm vikum fór ég til að kaupa gleraugu handa okkur Birni Loga. Björn fékk sín afgreidd daginn eftir. Ég bíð enn!!

Fyrir nokkru pantaði ég mér tíma í klippingu og strípur til að vera nú sæmilega útlítandi á Léttsveitarárshátíðinni í kvöld. Hálftíma fyrir tímann er hringt og mér sagt að hárgreiðslukonan sé veik.

Jæja, kannski fer að koma að því að allt nafnið mitt fær pláss í þjóðskránni. Þjóðskráin verður ríkari fyrir bragðið ;)