Nú hef ég sett kjól frá Rögnu Fróða efst á óskalistann - fram fyrir bæði skotthúfu og sauðskinnsskó - Féll sem sagt algerlega kylliflöt fyrir þessum dásamlegu kjólum á dekri og djammi Léttsveitarinnar í gær. Og þar var sannarlega dekrað og djammað - sumir drukku reyndar svona eins og einu rauðvínsglasinu of mikið en það getur auðvitað gerst á bestu bæjum en gerist vonandi ekki aftur í bráð

.
Annars hef ég dvalið megnið af helginni í Nóaborg við stúderingar með þeim Fanný Heimis og Önnu Margréti og þar hefur sannarlega farið fram fróðleg samræða.
Bergljót Kristjáns, ein af uppáhalds kennurunum mínum í HÍ, sagði að stór hluti háskólanáms fælist í samræðunni og það er ég að upplifa æ ofan í æ.
Við stöllur eigum nú töluvert í land með þetta verkefni okkar en stólum á að vikan verði notadrjúg. Altént höfum við lært heilmikið hvernig svo sem endanleg útkoma verður.
Nú um miðjan dag kom ég svo heim og við Björn bökuðum slatta af vatnsdeigsbollum í snarhasti og það dugði til að slá aðeins á skrambans samviskubitið sem ég fæ alltaf vegna þess hvað þessi fjölskylda mín situr alltaf á hakanum. Ótrúlegt umburðarlyndi sem þeir hafa til að bera þessir kallar mínir.
Og að lokum bendi ég á nýja krækju, hér til hliðar, á hana Steinu bróðurdóttur mína á Spáni. Mikið verður gaman að geta fylgst með henni, Guffa og stelpunum í gegnum bloggið. Einhvern veginn verður fjarlægðin minni en þegar við bjuggum hér nánast hlið við hlið.