sunnudagur, febrúar 27, 2005

Hvað er fegurð?

Þegar ég var í London í janúar vöktu sérstaka athygli mína veggspjöld með myndum af fallegum konum sem þó uppfylla ekki alla hefðbundna staðla um fegurð. Þessum spjöldum er ætlað að vinna gegn stöðluðum fegurðarímyndum. Í dag er einmitt umfjöllun um þetta átak í tímariti Moggans og bent á slóðina: www.campaignforrealbeauty.co.uk
Ég hvet ykkur til að kíkja þar inn og vita hvað ykkur finnst.

laugardagur, febrúar 26, 2005

Hrikalega sem þær eru skemmtilegar þessar vinkonur mínar, Trukkarnir.
Hér var sumsé léttvínskvöld hjá Trukkunum í gær og ´ómægod´ það var svo gaman. Byrjuðum á að snæða þennan guðdómlega kjúkling sem Védís benti á í Birtu um síðstu helgi og hann er BARA æði. Mæli 150% með honum - einfalt - fljótlegt og himneskt á bragðið - svona eins og matur á að vera. Nú svo skoluðum við niður nokkrum rauðvínsflöskum og það má eiginlega segja að það hafi ekki verið neitt sérstaklega leiðinlegt hjá okkur. Svo barst okkur liðsauki í fjörið úr einhverju heldur framlágu Karlakórspartíi þegar Diddi kom ásamt mínum gamla vini, Degi og Helgu konunni hans og slógust í hópinn.
Gunnar, þessi elska, sá svo um að allir kæmust til síns heima áður en nóttin var úti og ég vona að allir séu frískir og vel á sig komnir í dag. Alla vega er ég stálslegin og ætla að njóta helgarinnar í botn. Ekkert verkefni í vinnslu þessa stundna og það er hreint dásamleg tilhugsun - bara skemmtilegur félagskapur og huggulegheit.
Ætla að byrja á því að skreppa til að samfagna minni kæru mágkonu sem er sextug í dag.
Hugsið ykkur - hún hefur tilheyrt fjölskyldu minni lengur en ég sjálf - ótrúlegt en satt - enda hefur hún haft mikil áhrif á mig og verið mér fyrirmynd í mörgu. Frábær kona, Þura, sem fær sannarlega allar hamingjuóskir dagsins. Birthday Gifts

þriðjudagur, febrúar 22, 2005

Af léttum og öðru léttu

Svolítið mikið verið að kúra í náminu og svona þessa dagana. Helgin undirlögð frá morgni til kvölds - eða því sem næst - tel ekki með örlitla ísbíltúra og svona eitthvað til að létta aðeins lundina (rosa gott að sleikja ís í leðursætunum).Verst að ekkert léttist við það annað en lundin Fat Woman 2 þyrfti sennilega að koma mér til svona prívat-þjálfa sem léttir víst ýmislegt fleira en bara lundina!
Var svo í stúderingum fram yfir miðnætti í gær - og nú vantar bara herslumuninn hjá okkur stöllum að skila af okkur. Klárum þetta annaðkvöld. En í kvöld bara sælan -ætla að syngja frá mér alla þreytu með Léttunum - það er nú ekki til það sem þær ekki létta.
Á morgun frí - smá lærdómur en mest þó slaka, slaka, slaka.

mánudagur, febrúar 21, 2005

Í andleysinu

Andinn er oft í vanda,
yndis er stopull vindur
Brandur! Hvað ertu að blanda?
Bindindis jarma kindur.

Datt þessi gamla skemmtilega vísa í hug núna í andleysinu.
Minnir á gamla ótrúlega skemmtilega daga þegar Dynjandadýrin voru og hétu.
Það var nú í þá daga Rolly 3(Þessi er nú voða skemmtilegur, Carola!)



laugardagur, febrúar 19, 2005

NIÐUR Niður niður niður alveg niðrá ...

Æ, elskurnar, blogg-genin hafa bara alveg legið í dvala síðustu vikuna. Allt verið frekar niðurdregið.
Byrjaði á að vera í skólanum í tvo daga þar sem ég hlustaði á margar skemmtilegar kynningar frá samnemendum mínum. Við stöllur vorum næst síðastar á dagskrá og vorum eiginlega ferlega fúlar eftir á. Náðum andsk... ekki að segja neitt af viti og erum á því að mistök hljóti að hafa átt sér stað í tímatökunni. Hver hópur hafði 15 mín. og margir voru með heillangt mál. Það vorum við ekki og vorum frekar hræddar um að vera með of lítið. Lögðum upp með 6 glærur og vorum rétt að byrja á þeirri þriðju þegar við fengum viðvörun um að við ættum bara 4 mínútur eftir. Þetta varð því ansi endasleppt og við ósáttar. Æði margt sem stóð til að tilgreina en var ekki gert.
Höfum reyndar komið þessu á framfæri og vonum að tekið verði tillit til þess þegar skriflegi hlutinn verður metinn.

Nú svo fékk ég hringingu frá Kennó þar sem einn af kúrsunum sém ég var skráð í í sumar fellur niður - arrg - og ég því í hálfgerðri pattstöðu hvað sumarnámið varðar. Helv... hart að fara í launalaust leyfi nema það skili manni þeim einingum sem stefnt var að.

Ææ, koma tímar og koma ráð. Allavega miðar skriflega hluta áðurnefnds verkefnis ágætlega svo kannski er þetta allt á uppleið.

sunnudagur, febrúar 13, 2005

Var komin hreint í keng undir morgun af einhverjum fjárans magaverkjum. Ákvað samt að það myndi hressa mig að fara eftir hádegi í bíltúr til Þingvalla með þeim Sveini og Snorra. Húkti síðan heldur framlág inni í bíl með mína fartölvu og útbjó glærur fyrir málstofu í skólanum eftir helgi á meðan þeir fengu sér göngutúr um Vellina.
Það væsti svo sem ekki um mig í leðurklæddu sætinu með hita undir mínum óæðri - en ég var samt ósköp fegin að komast heim og skreiðast undir sæng.
Verð samt að ná heilsu í dag þar sem mín bíða dýrmætir skóladagar á morgun og hinn.

föstudagur, febrúar 11, 2005

Stundum geta sumir draumar ræst...

...og fjölskyldan nánast sveif heim eftir vinnuvikuna í þessum guðdómlega fararskjóta.

Kaupin gengu reyndar ekki alveg eins lipurt fyrir sig eins og í auglýsingunni þar sem kúnninn þiggur ekki einu sinni afrit en þau gengu fyrir rest og við erum alsæl. Nú þarf bara að fækka skrjóðunum á hlaðinu svo þeir skyggi ekki á þann nýja. Nú enda er engin þörf á gamla rauð lengur þar sem fjölskyldunni eru allir vegir færir á arftakanum.

sunnudagur, febrúar 06, 2005

Alltaf eitthvað nýtt og spennandi

Nú hef ég sett kjól frá Rögnu Fróða efst á óskalistann - fram fyrir bæði skotthúfu og sauðskinnsskó - Féll sem sagt algerlega kylliflöt fyrir þessum dásamlegu kjólum á dekri og djammi Léttsveitarinnar í gær. Og þar var sannarlega dekrað og djammað - sumir drukku reyndar svona eins og einu rauðvínsglasinu of mikið en það getur auðvitað gerst á bestu bæjum en gerist vonandi ekki aftur í bráð Blushy 4.

Annars hef ég dvalið megnið af helginni í Nóaborg við stúderingar með þeim Fanný Heimis og Önnu Margréti og þar hefur sannarlega farið fram fróðleg samræða.
Bergljót Kristjáns, ein af uppáhalds kennurunum mínum í HÍ, sagði að stór hluti háskólanáms fælist í samræðunni og það er ég að upplifa æ ofan í æ.
Við stöllur eigum nú töluvert í land með þetta verkefni okkar en stólum á að vikan verði notadrjúg. Altént höfum við lært heilmikið hvernig svo sem endanleg útkoma verður.

Nú um miðjan dag kom ég svo heim og við Björn bökuðum slatta af vatnsdeigsbollum í snarhasti og það dugði til að slá aðeins á skrambans samviskubitið sem ég fæ alltaf vegna þess hvað þessi fjölskylda mín situr alltaf á hakanum. Ótrúlegt umburðarlyndi sem þeir hafa til að bera þessir kallar mínir.

Og að lokum bendi ég á nýja krækju, hér til hliðar, á hana Steinu bróðurdóttur mína á Spáni. Mikið verður gaman að geta fylgst með henni, Guffa og stelpunum í gegnum bloggið. Einhvern veginn verður fjarlægðin minni en þegar við bjuggum hér nánast hlið við hlið.


föstudagur, febrúar 04, 2005

Ekki er ráð nema í tíma sé tekið...

... og þess vegna hef ég sett fram óskalista yfir afmælisgjafir eitthvert árið - einhvern tíma.
Á listanum eru tveir hlutir:
sauðskinnsskór og skotthúfa (þ.e. prjónahúfa með rauðum skúf).
Ég féll algerlega fyrir þessum tveimur hlutum í morgun þegar við fórum með börnin inn á heimili ömmu einnar telpunnar og skoðuðum ríkulegt safn hennar af fornum munum og þjóðbúningum. Þvílíkar gersemar! M.a. skautbúningurinn sem vakti svo mikla athygli þegar Dorit klæddist honum í sumar.
Ég læt mig nú ekki dreyma um slíkar dásemdir (þó aðrar miðaldra konur láti sig dreyma um ótrúlegustu hluti Blinking Heart ). Auðvitað mætti gjarnan fylgja eitthvað snoturt á búkinn en annars má bara skarta fallegri lopapeysu sem virðst vera mjög inn um þessar mundir.

Verst að Nenni minn er hræddur um að þurfa að ræna þjóðminjasafnið til að uppfylla þessa drauma mína!


fimmtudagur, febrúar 03, 2005

Út í bæ á öskudag eru skrítin læti,
krakkar á því kunna lag
kvik og létt á fæti.
Létt og hljótt að læðast um
lauma á fólkið pokum
Tralalala
Út í bæ á öskudag eru skrítin læti.

Sungu leikskólabörnin í dag og Særún spurði: "Hvaða pokar eru þetta sem þau læðast um með?"
Og það stóð ekki á svari: "Það eru nammipokar, svona sem maður fær nammi í á öskudaginn!"
Og jamm og jæja, þannig er nú það.

En annars fórum við með þessi sömu börn á þetta dásamlega Þjóðminjasafn okkar í morgun og þau höfðu orð yfir fjölmarga hluti eftir vinnuna undanfarið. "Sjáðu þarna er askur og þarna rokkur!" Svo sennilega kom þau til með að vita allt um öskupoka eftir miðja næstu viku og við þessi gömlu getum sofið róleg þess vegna.

miðvikudagur, febrúar 02, 2005

"Það þarf að passa vel uppá börn, því þau þurfa að endast lengi."

Þessa dásamlegu setningu rakst ég á í námskrá leikskólans Kjarrið í Kópavogi.

þriðjudagur, febrúar 01, 2005

Öfgamanneskja

Mér hættir pínulítið til að sveiflast öfganna á milli - taka helst allt mð trompi - eða þannig. Allavega hef ég tekið ráðleggingar vin og kunningja um að taka upp smá kæruleysi svo bókstaflega að ég náði ekki að skila inn 1. verkefni vorannar á réttum tíma Bag Head. Þurfti sem sagt að biðja um örlítinn frest, enda búin að vera að þvælast þetta bæði til London og í Brekkuskóg. En nú er þetta, held ég, bara allt að smella og ég lofa að taka mig á og reyna að finna þennan meðalveg sem allir segja svo skolli góðan.

Annars var þetta svona líka stórfín ferð í Brekkuskóg með Sólugenginu: Turdildúfunum Begga og Jóhönnu Thorst. og Jóni, Ara og Adam. Náði hæfilegri blöndu af pottalegu og skruddugrúski svo samviskan var hreint ekkert svo slæm eftir helgina.