Jæja, ljósin mín, þá er konan loksins orðin tengd á ný og engin afsökun lengur fyrir bloggleysinu nema ef vera kynni öööörlítil bloggleti. En í þessu slagveðri er ekkert betra en að blogga svolítið.
Ég nenni nú svo sem ekki að tíunda allt sem á dagana hefur drifið síðustu viku en uppúr stendur málningarvinnan á heimilinu, sem sannarlega var ekki vanþörf á. Búið að mála forstofuna, gestasnyrtinguna, hjónaherbergið og í gærkvöldi kláraðist svo Gunnars herbergi. Í dag ætti því að vera hægt að koma heimilinu aftur í samt lag. Þvílíkur munur! Allt ljóst og fallegt og endanlega búið að úthýsa gula og græna litnum sem hér réðu ríkjum í nokkur ár. Og svo var konan svo djörf að setja svolítið kvenlegan svip á svefnherbergið með eldrauðum gardínum, púðum og þ.u.l. 'Otrúlegt hvað kallinn passar vel inn í herlegheitin - en grár tónar nú ágætlega við rautt - ekki satt?
Venjulega hefur það nú fallið í minn hlut að sinna málningarvinnu á heimilinu en að þessu sinni kom ég ótrúlega lítið nálægt framkvæmdunum, Gunnar sá um þetta að mestu leyti svo ég gat haldið mig við lestur, skroppið þess á milli í vísiteringu í eina tvo sumarbústaði, setið frábæra grillveislu, og farið á þessa frábæru tónleika með Reykjavík5 í gærkvöldi, svo eitthvað sé nefnt.
Nú svo þarf ég endilega að læra betur á þetta blogg. Langar t.d. til að geta sett inn myndir núna þegar ég er með þær inni í sömu tölvunni. Hlýtur að vera hægt - Kunnið þið það???
