fimmtudagur, júlí 29, 2004

Jæja, ljósin mín, þá er konan loksins orðin tengd á ný og engin afsökun lengur fyrir bloggleysinu nema ef vera kynni öööörlítil bloggleti. En í þessu slagveðri er ekkert betra en að blogga svolítið.
Ég nenni nú svo sem ekki að tíunda allt sem á dagana hefur drifið síðustu viku en uppúr stendur málningarvinnan á heimilinu, sem sannarlega var ekki vanþörf á. Búið að mála forstofuna, gestasnyrtinguna, hjónaherbergið og í gærkvöldi kláraðist svo Gunnars herbergi. Í dag ætti því að vera hægt að koma heimilinu aftur í samt lag.  Þvílíkur munur! Allt ljóst og fallegt og endanlega búið að úthýsa gula og græna litnum sem hér réðu ríkjum í nokkur ár. Og svo var konan svo djörf að setja svolítið kvenlegan svip á svefnherbergið með eldrauðum gardínum, púðum og þ.u.l. 'Otrúlegt hvað kallinn passar vel inn í herlegheitin - en grár tónar nú ágætlega við rautt - ekki satt?

Venjulega hefur það nú fallið í minn hlut að sinna málningarvinnu á heimilinu en að þessu sinni kom ég ótrúlega lítið nálægt framkvæmdunum, Gunnar sá um þetta að mestu leyti svo ég gat haldið mig við lestur, skroppið þess á milli í vísiteringu í eina tvo sumarbústaði, setið frábæra grillveislu, og farið á þessa frábæru tónleika með Reykjavík5 í gærkvöldi, svo eitthvað sé nefnt.

Nú svo þarf ég endilega að læra betur á þetta blogg. Langar t.d. til að geta sett inn myndir núna þegar ég er með þær inni í sömu tölvunni. Hlýtur að vera hægt - Kunnið þið það???

 

fimmtudagur, júlí 22, 2004

Sorry elskurnar bloggleysið en hér á bæ er allt án netsambands þessa dagana. Brátt verður þó gerð bragarbót á því þar sem frúin er sko komin með sína prívat yndislegu fartölvu og heimilið verður netvætt sem aldrei fyrr innan tíðar. Þráðlaust og allt...
Annars er allt gott héðan - lesturinn íþyngjandi, en eftir áætlun - en rjómablíðan í bland við svolítið útsölurölt síðustu daga og frábæra pottferð, til Siggu með Léttunum, síðsta þriðjudag, léttir manni sannarlega lífið.
Yfir og út núna - en kem svo sterk inn í þráðlausu sambandi á nýju elskunni.

fimmtudagur, júlí 15, 2004

Jæja, best að blogga svolítið á meðan viðgerðarmaðurinn á við uppáhaldið mitt, í þvottahúsinu. Kann ekki við að standa yfir honum greyinu.
Nú svo stendur til að rölta sér út í búð og kaupa eitthvað til að narta í, í kvöld - en til stendur að fara á smá skerjaskrölt í góðum félagsskap.
Ætlaði reyndar í bæinn á búðarráp en þvottavélaviðgerðin gengur fyrir því. Annars var ég hreinlega að mygla í gær, sat inni og las og las og las og horfði út í góða veðrið. Hafði mig svo ekki einu sinni í að gera eitthvað skemmtilegt eftir að skruddunni var nú loksins lokað. Hryllilega sem maður getur sokkið í mikið slen, jafnvel á björtu sumarkvöldi. En annars gengur lesturinn framar vonum svo nú ætla ég að slaka aðeins á klónni og njóta lífsins í sumarfríinu :)

Jæja vélin komin í lag og orsökin spöng úr brjóstahaldaranum mínum - úbbs!!!
En yfir og út - rölt í búðina.

þriðjudagur, júlí 13, 2004

70 sokkar

Haldiði ekki að bévuð þvottavélin hafi bilað í gær. Skruðningar og læti. Annars má ég ekki bölva þessum besta þjóni mínum og uppáhalds heimilistæki. Veit ekki hvernig ég færi af án hennar. Kannski reynir á það næstu vikuna :(
Ætli hér leggist ekki til á viku að meðaltali:
35 sokkapör eða 70 sokkar,
35 nærbuxur
30 - 40 bolir, skyrtur og blússur,
10 - 15 buxur
5 - 10 handklæði (og stundum meira því SUMIR fjölskyldumeðlimir taka hreint í hvert skipti :( )
Og svo auðvitað peysur, rumföt, tuskur og fleira.

Dí, ég auglýsi hér með eftir einstaklingi til að sjá um þvottana á þessu heimili. Má hafa með sér hund :).

sunnudagur, júlí 11, 2004

Ég vissi það að ekki yrði hægt að hugsa sér betri byrjun á sumarfríinu en Léttsveitarútilegu. OFSALEGA VAR GAMAN! Takk stelpur !
Auðvitað slógum við öll þátttökumet að þessu sinni (erum svolítið í því að slá met þessa dagana). Ég held að einar 46 kórkonur hafi mætt á svæðið með mismikið fylgdarlið með sér. Og það var spilað kubbaspil í gríð og erg og spjallað og hlegið og borðað og drukkið (bara pínulítið) og sungið og sungið og sungið...Ég vissi ekki hvað Odda er frábær á gítarinn. Hreinlega ekkert sem vafðist fyrir stúlkunni þar. Og í hvert skipti sem þessi hópur gerir eitthvað svona skemmtilegt saman þá kynnist maður þessum frábæru konum örlítið betur, það er alltaf einhver sem hleypir manni aðeins nær sálartetrinu í hvert skipti og manni finnst að enn á ný hafi maður fundið gullmola í þessum hópi. Konu sem hefur mikla (og kannski sára) reynslu á bakinu en er samt ein af helstu gleðigjöfunum í hópnum. Mikið dáist ég að þessum konum - maður verður einhvern veginn alltaf pínu-pínulítið betri manneskja sjálf af að vera með þeim. ENN OG AFTUR TAKK STELPUR!

miðvikudagur, júlí 07, 2004

Ljúf og létt vika í vinnunni. Mörg barnanna komin í frí og mitt þriggja vikna frí rétt handan við hornið. Flott að byrja það með Léttsveitarútilegunni. Þar stefnir í metþátttöku og glimrandi góða ferð. Það var líka slegið met í gönguhópnum í gærkvöldi þegar einar 38 léttur smjöttuðu saman á ljúffengum tertum í Flórunni í Grasagarðinum. Lítið labbað en mikið borðað og ennþá meira spjallað. Skemmtilegt kvöld.
Og líka flott mánudagskvöld í blíðunni í fyrradag. Fórum í þessa líka fínu siglingu út að Þerney þar sem við gæddum okkur á pasta og nutum veðurblíðunnar.

Í gær beið mín bréf frá Kennó þegar ég kom heim og ljóst að það er veruleiki að kellingin sest á skólabekk aftur í haust. Þetta verður mér nú sennilega svolítið töff, sérstaklega vegna enskunnar og trúlega ekki undan því komist að helga sumarfríið lestri á fræðunum til að undirbúa sig. Þarf að klára fyrstu 7 kaflana í Sergiovanni fyrir september - úff.. Nú svo verður maður trúlega að skoða frekari niðurskurð á öðrum verkefnum fyrir haustið. Að öðru leyti leggst þetta bara vel í mig - það er alltaf svo gaman að setjast á skólabekk og læra eitthvað nýtt. Svo virðist hópurinn vera fínn sem er að hefja þetta nám - í það minnsta ef þessi fáu nöfn sem maður kannast við endurspegla hann. 35 manns og þar af aðeins 4 karlar - augljóst að okkur konur þyrstir í menntun. Viljum líka alltaf vera vel undirbúnar undir þau verkefni sem við tökum að okkur. Viljum vera vissar um að við völdum því sem við tökum að okkur - eða er það ekki?