fimmtudagur, desember 23, 2004

Gleðileg jól, kæru vinir.

sunnudagur, desember 19, 2004

Ohhh

stúdentinn minn vaaar svo flottur með hvíta kollinn í gær (er auðvitað bara nokkuð ágætur í dag líka) og svo fékk hann verðlaun fyrir frönskuna og allt... og mamman var svooo montin.
Og svo bara jólin framundan með bókum (ekki námsbókum), púsli, smákökum, konfekti, dekri og góðum félagsskap :)

miðvikudagur, desember 15, 2004

Afmæliskallarnir

Jæja, lokahrinan á afmælistörninni þessa daganna. Gunnar 21 í gær og Sveinn örlítið eldri en það í dag. Afmælishefðirnar á þessu heimili orsaka oft frekar stuttan nætursvefn (sérstaklega ef maður hundskast seint í rúmið) en þær eru sannarlega þess virði.
Jólakvöld trukkanna á mánudaginn var alveg frábært með kræsingum og árlegum pakkaleik. Ææ, þessar stelpur eru eitthvað svo frábærar og óútreiknanlegar!!!
Og tónleikarnir í gær voru held ég alveg að gera sig - svona miðað við það sem maður bjóst við. Held að okkur hafi tekist að brosa okkur í gegnum þetta þó mér hafi reyndar ekki fundist passa að kórinn gólaði um leið og hann hneigði sig - Ekki svona rétt eftir því að hafa sungið Heims um ból. Það bara passar ekki. Ég held reyndar að Jóhanna hafi verið að reyna að segja okkur að sleppa þessu en það einhvern veginn skilaði sér ekki. En ég hafði gaman að því að í salnum var heill hópur af gömlum skólasystrum af húsmæðraskólanum og ég náði því að heilsa aðeins upp á þær eftir tónleika.
En annars bara frí í dag - þvílíkur lúxus - smá útréttingar, kannski örlítil tiltekt og svo góðgerðasöngur á spítölunum. Verst að tengdó er ekki í standi til að koma fram af stofu til að hlusta.

sunnudagur, desember 12, 2004

Hrein dásemd

að sitja hér og hlusta á malið í prentaranum á meðan ritgerðin mín flæðir út úr honum fullsköpuð og tilbúin til að fá salíbunu niður í Kennó.
Og bara jólin framundan - ja og einir tónleikar og tvö afmæli og ein stúdentsútskrift en hvað er það svo sem nema tóm sæla :)

miðvikudagur, desember 08, 2004

Elskurnar mínar, einhverra hluta vegna hefur blogg ekki verið á döfinni að undanförnu en nú skal ég reyna að bæta aðeins úr því.
Ég er sem sagt komin heim frá Glasgow, fyrir nokkru síðan og það var alveg óstjórnlega gaman. Hvernig ætti annað að vera hægt í þessum félagskap. Áreiðanlega lengdist líf okkar Trukkanna um nokkrar vikur í ferðinni enda mikið (og þá meina ég mikið) hlegið. Fyrsta kvöldið okkar úti upplifðum við þvílíkan farsa í samskiptum við hótelið að annar betri hefur ekki birst á fjölum leikhúsanna. Auðvitað áttu þær Carola og Guddý stóran þátt í atburðarásinni (ásamt reyndar starfsfólki hótelsins) og tókst að draga okkur hinar þrjár á asnaeyrunum í einn og hálfan klukkutíma þar sem við sveifluðumst á milli þess að vera óstjórnlega pirraðar eða hreinlega engjast af hlátri.
Við launum þeim lambið gráa einhvern tíma við tækifæri !!

Svo var ótrúlega notalegt að koma heim enda bóndinn búinn að baka fjórar sortir á meðan ég mældi götunar í Glasgow, svo hér eru allir dallar fullir af smákökum til jólanna - eða voru fullir - eitthvað er nú víst farið að saxast á þá ;)

Annars hefur tíminn aðallega einkennst af ritgerðarvinnu sem mér tekst vonandi að ljúka svona að mestu leyti efnislega í dag. Svo er bara eftir að koma einhverju skikki á verkið svo það verði í sæmilega rökréttu og læsilegu samhengi. Eftir 12. des tekur svo vonandi við eintómt jóladúllerí og notalegheit með tónleika, afmælis, og útskriftar ívafi.