Vestrænar konur geta ekki setið á hækjum sér
Þau eru mörg rannsóknarefnin.
Þessi frétt er inni á mbl.is:
Rannsókn sem miðaði að því að finna hina fullkomnu stellingu fyrir konur til að pissa fór út um þúfur vegna þess að þegar á reyndi voru vestrænar konur ófærar um að sitja á hækjum sér nógu lengi.
Frá þessu greinir fréttavefurinn Ananova.com og hefur eftir ástralska blaðinu The Australian.
Rannsóknin var gerð í Ástralíu og ætlunin var að bera saman vestræna salernisstellingu og hækjusetustellingu sem víða tíðkast í þriðja heiminum.
En í ljós kom, að vestrænar konur sem tóku þátt í rannsókninni gátu ekki setið á hækjum sér lengur en í hálfa mínútu án þess að detta.
Í rannsókninni var leitast við að safna upplýsingum um þætti á borð við hversu hratt þátttakendur gætu pissað, hámarkshraða, meðalhraða, hversu langan tíma tók að ná hámarkshraða og hversu mikið var pissað.
Já, stelpur mínar, kannski eigum við þeim konum sem tóku þátt, það að þakka að þurfa ekki að húka yfir gati í hvert skipti sem við þurfum að létta á okkur í framtíðinni. Mikið er ég þeim þakklát.
