miðvikudagur, ágúst 25, 2004

Guvuð, hvað allir eru myndarlegir í kringum mig. Búnir að sulta einhver heil ósköp og ég veit ekki hvað. Og ég hef ekki tínt eitt einasta ber. Ja, ekki handa sjálfri mér. Ég tíndi auðvitað eitthvað í þessar 5 fötur sem leikskólabörnin fylltu af rifsberjum um daginn og búið er að sulta úr í skólanum.
En annars hellast haustverkin yfir mig eins og aðra.
Verst var að þurfa að fara aðra ferð í Office one og Griffil á mánudaginn. Guð hjálpi mér. Raðirnr eftir kössunum náðu endanna á milli í báðum búðunum. Sveinn tók að sér Office-röðina en við Snorri fórum og kláruðum innkaupin í Griffli. Biðum í u.þ.b. þrjú korter í röð, í loftleysi og hitasvækju. Það leið yfir eina stúlku í röðinni og starfsfólkið gekk á mlli með glös og könnu til að brynna liðinu. Ég held að þessir framhaldsskólar verði að taka upp nýja siði og veita nemendum upplýsingar um áfanga og bókakaup með lengri fyrirvara eða sætta sig við bókalausa nemendur fram eftir fyrstu vikunni. Gengur ekki að stefna mörg þúsund manns í þessar búðir á einum og sama deginum.
Fyrsti fundur haustsins vegna þróunarverkefnisins var svo í gær og síðan árangursríkur stjórnarfundur Léttanna hjá Jóhönnu. Nú að honum loknum var glimrandi partý með gönguhópnum þar sem Wiskybætt berjasulta að hætti stjórnandans vakti verðskuldaða athygli. Vildi að mér dytti svona í hug.
Nú áður en ég skreið svo í bólið tókst mér að hnoða saman - í orðsins fyllstu merkingu hnoða saman - tækifærisvísu til Ingveldar matráðs sem varð sextug í dag. Í morgun var svo farið snemma á fætur og arkað í vinnuna til að taka á móti afmælisbarninu með stæl. Sé að ég verð að vera Hofgyðja fram yfir fimmtugsafmælið.

Nýja tölvan mín er að stríða mér - Lyklaborðið gúlpar upp og ekki nema hluti stafanna fer á skjáinn. Reyni að fylgjast með þessu og laga jafnóðum en sennilega hefur mér yfirsést eitthvað. Sorry!


sunnudagur, ágúst 22, 2004

Menningastraumar

Sannarlega menningarlegir straumar sem maður lét berast með á menningarnótt.
Byrjuðum með stæl í þvílíkt huggulegum hádegismorgunverði hjá Elísabetu úti í sólinni og sigldum svo til móts við miðborgina um miðjan dag. Flott áhöfn þar sem þau tengdamamma, Óli Ingi, Ingunn, Emil Grettir og síðast en ekki síst Axel Ingi kapteinn fylltu flotann. Góð sigling í hægum andvara.
Síðan létum við berast með mannstraumnum í borginni þar til við fórum um borð aftur þar sem við hittum meðeigendur okkar þá Jón og Begga og Jóhönnu, ástkonu Bergs, ens og hún kynnti sig sjálf fyrir gestum og gangandi. Sveinn steikti hamborgara ofan í hús/skipráðendur af stakri list og margir góðir gestir ráku inn nefið - og svo skemmtilega vildi til að hver heimsóknin rak aðra svo alltaf var hægt að koma fyrir þeim rössum sem þurftu pláss.
Við Jóhanna misstum okkur aðeins í rauðvínslegnar umræður um pólitík og leikskólamál á milli þess sem sönggræðgin heltók okkur. Þjóðverji af stórri skútu þarna við hliðina á okkur ´hreifst´svo af okkar ´ægifagra ´ söng að hann bað um að fá að taka okkur upp á myndband og við sungum fyrir hann tregafullar Vísur Vatnsenda-Rósu. Já, maður er bara alltaf að slá í gegn!!!
Nú svo vorum við auðvitað í stúkusætum þegar flugeldasýningin hreinlega helltist yfir okkur og fengum að lokum hæglætis siglingu aftur heim í Snarfara í næturhúminu.

föstudagur, ágúst 20, 2004

Haust í blíðunni

Jæja, þá er ljóst að þrátt fyrir veðurblíðuna nálgast haustið óðfluga.
Síðustu börnin kvöddu leikskólann í dag með þvílíkum veisluhöldum og takast svo á við grunnskólalífið í næstu viku.
Og eftir helgi tekur við vinna með nýjum barnahópi sem sannarlega lofar góðu. Horfi því fram á skemmtilegan vetur. Og það gleður mann alltaf þegar maður finnur að foreldrar virðast ánægðir - fer reyndar alltaf hjá sér þegar foreldrar koma með gjafir til starfsfólks að skilnaði, en trúir að þær séu til vitnis um það að foreldrum finnist að gott starf hafi verið unnið.
Síðsta vika var allavega mjög skemmtileg ekki síst að halda upp á afmæli Reykjavíkur þann 18. með því að fara með liðið upp í turn Hallgrímskirkju og horfa yfir afmælisbarnið baða sig í sólinni.

Nú svo er maður búinn að skáskjóta sér í ritfangabúðaþvögunni við að kaupa árlegan skammt af stílabókum, blýöntum og gráðubogum (sem alltaf týnast á milli ára) og það er nú ótvírætt haustmerki.

Og svo menninganótt á morgun með aðsetur í Sólu í Reykjavíkurhöfn, þar sem vinum og vandmönnum verður velkomið að reka inn nefið svona á meðan skipsrúm leyfir og gestgjafar eru ekki úti á ballarhafi.
Engin plön, engin dagskrá, maður lætur bara berast með straumnum.

miðvikudagur, ágúst 18, 2004

Ég heiti Ingibjörg og ég er fíkill...

... eiturlyf - nei,
áfengi - nei,
súkkulaði - JÁ...
...og mér líður eins og rúllupylsu

þriðjudagur, ágúst 17, 2004

Nýi leikskólinn í Grafarholti heitir Geislabaugur!
Hvernig dettur fólki þetta í hug?

sunnudagur, ágúst 15, 2004

Sat þetta stórglæsilega brúðkaup í gær. Það er reyndar svolítið skrítið að fara í brúðkaup þar sem maður hefur aldrei séð brúðina áður. Hef aldrei áður farið í brúðkaup þar sem ég þekki brúðhjónin svona lítið, enda var ég þarna bara sem fylgifiskur Sveins. En maturinn var æði og endalaust bætt í vínglösin svo maður hafði varla undan. Var enda orðin pínulítið skökk þegar heim var haldið. Ég hafði svolítið gaman að því að Gunnar Ingi var að vinna í veislunni þar sem kokkarnir á Eir sáu um veisluna og hann var að aðstoða þá.
Annars hefur þetta verið fín vika í veðurblíðunni. Fór loksins til Elínar en ég hafði ekkert hitt hana síðan mamma hennar dó. Það er alltaf gott að rabba við Elínu og ekki spillti fyrir að hún var með ömmubarnið hjá sér, þriggja mánaða dásamlegan pilt. Umm, hvað ég held að það sé gaman að vera amma. Ég er svo biluð - var farin að bíða eftir að verða mamma strax á unglingsárum og er núna full tilhlökkunar eftir því að verða amma. Vil samt auðvitað ekkert að synirnir fari að hrúga niður börnum alveg á næstunni.
Trukkarnir áttu svo saman skemmtilega kvöldstund hjá Carolu og nú er búið að plana Glasgowferð í haust sem verður áreiðanlega þvílík upplifun - þetta er nú ekkert venjulegur hópur.
Nú svo hefur vikan og veðurblíðan auðvitað verið notuð til siglinga- annað var nú bara ekki hægt. Fórum tvær frábærar kvöldferðir með góðum vinum. Önnur rifjaði upp gamlar stundir þar sem mikið var hlegið og það var ljúft að sigla með Heiðu, hlægja með henni og rabba.
Hin ferðin var með fjórum Hofgyðjum og var ævintýri líkust - það var svo mikil blíða. Það er ekki á hverjum degi sem maður siglir á hlírabolnum fram að sólarlagi. Og þvílíkt sólarlag - Ekki mikill byr en annars dásemd.

mánudagur, ágúst 09, 2004

Ummm...

...sannkölluð blíðuhót í veðrinu í dag.
Við fórum með börnin í frábæra ferð í dag í Nauthólsvíkina. Ég hef aldrei áður farið með barnahópinn þangað en við áttum sannarlega skemmtilega stund. Börnin rifu sig auðvitað úr hverri spjör til að njóta sjávarsullsins en þá kom til okkar ábúðarmikill kappi í appelsínugulum bol og spurði hvort við værum að breyta ströndinni í nektarnýlendu. Nekt er sem sagt bönnuð svo liðið dreif sig bara í nærurnar og naut sullsins á brókinni. Eftir að hafa gætt okkur á vel útilátnu nestinu hélt svo hópurinn heim nærbuxnalaus. Og Berta mín, þessi elska (5 ára húmoristi) kom með þetta gullkorn á heimleiðinni (verst að þið sjáið ekki brosið í augunum og heyrið ekki tístið í henni): "Hugsa sér alla þessa beru bossa í buxunum"

sunnudagur, ágúst 08, 2004

Jæja, þá er það orðið opinbert að við hjónin höfum legið í rauðvíninu í sumar. Mogginn slær þessu upp í morgun; segir léttvínsdrykkju hafa tvöfaldast síðasta árið. Það er auðvitað alltaf gott að styrkja Ríkið þó mér finnist það nú alveg hirða nóg af launalúsinni minni um hver mánaðamót. Kannski að maður dragi aðeins úr rauðvínskaupunum svona með haustinu svo þetta veki ekki svona mikla eftirtekt.
Annars fór fjölskyldan og amma Lolla í bíltúr að Svínavatni í gær, þar sem loksins var staðið við það að leyfa piltunum að fara á jetski. Þeir þeyttust um vatnið þvert og endilangt og sennilega hefur salíbunan verið frekar skemmtileg, þar sem brosið fór ekki af Birni Loga það sem eftir lifði dags. (Hér ætlaði ég að setja inn mynd af piltunum og þykist hafa fundið vefsíðu sem geymir myndir en einhverra hluta vegna fæ ég ekki sent 'passorð' til baka frá þeim)
Svo horfir maður fram á skemmtilega viku og blíðviðri; ætla bæði að kíkja á Elínu Ásgríms og eiga kvöld með Trukkunum og hver veit nema eitthvað verði loksins siglt líka ef veðuspáin rætist.
Mér er sennilega hollast að vera dugleg við lestur í dag til að geta notið vikunnar.

fimmtudagur, ágúst 05, 2004

Almáttugur minn, hvað hefur eiginlega orðið um þetta sumar? Mér finnst einhvern veginn ég ekki hafa gert neitt af viti. Talaði við Birnu í gær og þau hafa endasendst um landið þvert og endilangt og gert ótal skemmtilega hluti á meðan ég hef setið heima á mínum mjúka rassi og varla farið í göngutúr, hvað þá meira. Jú, jú, veit ég vel að ég fór til Ítalíu og allt það ...en Fellsmörkin hefur algerlega orðið útundan þetta árið; útilegunætur má telja á fingrum annarrar handar og ekki get ég nú stært mig af miklum siglingum. Björn Logi kvartar sáran yfir þessu ferðaleysi fjölskyldunnar enda held ég að við höfum aldrei verið svona ódugleg hvað þetta varðar. En til að vera trú Pollýönnuhugsjóninni þá get ég þakkað fyrir að það hefur saxast á verkefnalistann, bæði hvað varðar hemilið og námsbókalesturinn. Já, fátt er svo með öllu illt...

Og nú sér fyrir endann á fyrstu vinnuviku eftir frí og það er svo skrítið að eins og ég er alltaf löt við að koma mér aftur í rútínuna þá er alltaf voða gott þegar hún er komin á. Og á hverju ári sé ég óskaplega eftir börnunum sem eru að kveðja leikskólann og trúi því að aldrei muni ég fá aðra eins gullmola aftur en strax á fyrstu dögunum er ég að taka á móti alveg frábærum krökkum. Nú er ég að verða of væmin fyrir "suma" trygga lesendur (nefni engin nöfn en fyrsti stafurinn er Carola) en ætla þó að toppa sjálfa mig með fleygum orðum Sesselju ömmu minnar: "Já, alltaf eru börnin best"!!

mánudagur, ágúst 02, 2004

Síðasti dagur í sumarfríi...

...og spurningin er: Hvernig á að nota daginn? Á maður að liggja í leti; á að nýta daginn í fræðibækurnar; eða ætti maður að keyra eitthvað út fyrir bæinn eins og tvo s.l. daga?
Sá á kvölina sem á völina!