föstudagur, mars 26, 2004

Ég hélt að ég væri hætt - og kannski er ég það - hver veit.
Langaði bara aðeins til að tjá mig - kannski aðallega til að ná bollunum úr ofninum!
Annars hefur verið eitthvað svo margt verið á döfinni að öll blogglöngun hefur vikið úr vegi.
En nú er ákveðið spennufall - búið að skila inn umsóknum um breytta framtíð og bara bið framundan.
Skrítið að leggja allt sitt á vogaskálarnar og láta öðrum eftir að vega mann og meta. Kannski verður maður léttvægur fundinn og verður þá að taka því!